Pasta með kjúklingi og ómótstæðilegri ostasósu

mbl.is/Yammie´s Noshery

Ef það er ekki tilefni til að dekra við sig með smá kolvetnasprengju þá veit ég ekki hvað. Guðdómlegt pasta... löðrandi í ostasósu. Er eitthvað betra?

Pasta með kjúklingi og ómótstæðilegri ostasósu

  • 2½ bolli soðið pasta
  • ¾ bolli eldaðir kjúklingabitar (t.d. kjúklingabrjóst)
  • ¼ bolli smjör
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • ½ rauðlaukur, smátt saxaður
  • 1 bolli mjólk
  • 2 msk. maísenamjöl
  • 100 g rjómasostur
  • 2 tsk. worcestershire-sósa
  • 1 tsk. tabasco-sósa
  • ½ tsk. cayenne-pipar
  • ¼ tsk. laukduft
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. salt
  • ¼ tsk. svartur pipar
  • 2 bollar rifinn ostur (t.d. blanda af gouda og mozzarella)
  • Mulinn gráðaostur, saxaður púrrulaukur og kóríander til að dreifa yfir að lokum.
  • U.þ.b. 1/3 bolli af góðri grillsósu, eða:
  • 1 msk. tabasco-sósa
  • ¼ tsk. cayenne-pipar
  • 2 msk. smjör
  • 2 tsk. maisenamjöl
  • 2 msk. vatn

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C og smyrjið fat eða ofnpönnu.
Bræðið smjörið í potti og kraumið hvítlaukinn og rauðlaukinn lauslega.
Hrærið maisenamjölið út í nokkrar skeiðar af mjólkinni þar til kekkjalaust. Hellið út á laukinn í pottinum og hrærið vel.
Bætið við worcestershire-sósu, tabasco-sósu, cayenne-pipar, laukdufti, hvítlauksdufti, salti og pipar. Haldið áfram að elda við meðalhita þar til blandan er hæfilega þykk. Bætið rjómaostinum út í ásamt einum bolla af rifna ostinum, hrærið vel.
Hellið síðan sósunni yfir pastað í ofnpönnunni og dreifið restinni af ostinum yfir.

Blandið innihaldsefnum sósunnar saman í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur, takið út og hrærið, endurtakið þetta þar til sósan fer að þykkna. Bætið út í vatni eftir smekk og hrærið þar til sósan hefur fengið samfellda og mjúka áferð.  
Bætið kjúklingabitunum út í sósuna og dreifið þeim síðan yfir pastað í skálinni, þrýstið nokkrum bitum ofan í pastað.
Bakið í ofninum í u.þ.b. hálftíma. Dreifið loks gráðaosti, kóríander og púrrulauk yfir réttinn, og meiri sósu ef vill.


mbl.is/Yammie´s Noshery
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert