Ómótstæðileg vefja sem gleður hjartað

Morgunvefja sem inniheldur allt sem þarf til að starta deginum.
Morgunvefja sem inniheldur allt sem þarf til að starta deginum. mbl.is/Leah Maroney

Þessi snilldar morgunvefja er jafn gild sem hádegismatur á gríska vísu. Spínat, fetaostur og olífur eru hér að gleðja magann í einni vefju. Þú getur útbúið nokkrar af þessum og sett í frysti, þá áttu alltaf til ferska vefju sem þú getur hitað í örbylgju eða í ofni.

Morgunvefja í hádeginu

  • 2 egg
  • ½ bolli ferskt spínat, saxað gróflega
  • 4 Kalamata ólífur, saxaðar
  • ¼ bolli fetaostur, mulinn
  • 1,5 msk. smjör
  • Tortilla
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Hitið litla pönnu á meðal hita. Setjið ½ msk af smjöri á pönnuna og látið bráðna.
  2. Brjótið eggin í litla skál og pískið létt saman áður en þið hellið þeim út á pönnuna og gerið eggjahræru. Rétt áður en eggin verða tilbúin, bætið þá spínati út á pönnuna og blandið saman þar til eggin eru tilbúin.
  3. Leggið eggjablönduna ofan á tortillakökuna. Setjið fetaost yfir eggin ásamt ólífum.
  4. Vefjið upp og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert