Ilmandi morgunbollur sem gleðja

Dúnmjúkar og bragðgóðar morgunbollur sem vert er að bjóða upp …
Dúnmjúkar og bragðgóðar morgunbollur sem vert er að bjóða upp á ylvolgar með smjöri og osti. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Það er ekkert betra en að vakna við lokkandi ilm úr eldhúsinu. Ef þig langar að dekra við heimilisfólkið þitt þá er vel hægt að mæla með þessum morgunbollum í morgunmat. Þær eru sérlega bragðgóðar og dúnmjúkar sem er fljótlegt að gera og þarf ekki að hnoða. Þær má annaðhvort útbúa kvöldinu áður og láta hefast inni í ísskáp yfir nótt eða láta þær lyfta sér við stofuhita. Þær eru ómótstæðilegar nýbakaðar með smjöri og osti. Uppskriftin kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur og gerði hún morgunbollurnar fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Morgunbollur

10 stykki

  • 250 ml volgt vatn
  • 2 msk. hunang
  • 1 ½ msk. þurrger
  • 250 g léttmáls grísk jógúrt
  • 475 g hveiti
  • 2 tsk. salt
  • Birkifræ eða önnur fræ eftir smekk

Aðferð:

  1. Hrærið saman í stórri skál: volgu vatni, geri og hunangi og látið standa í 5 mínútur eða þar til gerið leysist upp.
  2. Hrærið með sleif hveiti og salti út í grísku jógúrti, þar til deigið er komið saman. Það á að vera frekar blautt.
  3. Leggið plastfilmu þétt yfir skálina og látið hefast við stofuhita í eina klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast. Deigið má líka setja í ísskáp yfir nótt.
  4. Hitið ofn í 200°C hita með blæstri.
  5. Hellið deiginu á hveitistráið borð og mótið lauslega 10 bollur úr því.
  6. Reynið að meðhöndla deigið eins lítið og hægt er og dýfið hverri bollu í birkifræin.
  7. Bakið bollurnar í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til þær eru fallega gylltar.
  8. Berið fram ylvolgar með smjöri og osti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert