Nýr íslenskur kaffidrykkur á markað

mbl.is/KS

Kominn er á markað nýr íslenskur kaffidrykkur sem á eflaust eftir að gleða marga kaffiunnendur enda hágæða drykkur sem búið er að leggja mikla hugsun í. Það er KS sem framleiðir í samstarfi við Te & kaffi og kemur í tveimur bragðtegundum; annars vegar með mjólk og hins vegar með karamellu- og heslihnetubragði.

Að sögn Drífu Árnadóttur, markaðsstjóra KS, var hugmyndin að búa til háklassadrykk í þægilegum umbúðum sem hægt væri að grípa með hvar og hvenær sem væri. „Við vildum engar málamiðlanir og allt kapp var lagt á að hafa drykkina náttúrulega og hreina og því er engum aukaefnum blandað saman við  Íslatte Cold Brew.“

„Við fengum því Te og kaffi fljótlega inn í þrónunarvinnuna með okkur og fóru sérfræðingar þeirra að vinna með okkar vöruþróunarteymi. Te og kaffi er fyrirtæki sem hefur langa reynslu í framleiðslu og sölu á kaffi og því frábær samstarfsaðili í þessu verkefni,“ segir Drífa.

Bragðgæði án málamiðlana

Kaldbruggun, eða Cold Brew, er aðferð til þess að búa til kaffi þar sem malaðar kaffibaunir eru látnar liggja í köldu vatni í lengri tíma, yfirleitt í 12-24 klukkustundir. Lögurinn er síðan síaður og eftir stendur afar bragðmikil og öflug kaffiblanda, silkimjúk en þó rótsterk. Eftir það er kaffið meðhöndlað eftir vilja hvers og eins, ýmist hitað eða ekki, blandað með vatni og/eða mjólk og bragðbætt á hvern þann hátt sem neytandinn kýs. Að margra mati er þetta hin eina og sanna aðferð til þess að búa til hinn fullkomna kaffibolla.

Kaffið sem notað er í Íslatte Cold Brew er sérvalið og látið liggja í 24 tíma áður en það er síað og þá meðhöndlað eftir kúnstarinnar reglum af kaffigerðarmeisturum okkar. Í einni 250 ml flösku fást þannig 190 mg af koffíni sem er talsvert sterkara en gerist og gengur við aðrar aðferðir. Bragðið er þó laust við alla remmu og fyllingin allsráðandi.

Íslatte Cold Brew er komið í verslanir og er einnig til sölu á kaffihúsum Tes & kaffis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert