Ein umhverfisvænasta veganmjólkin mætt á Joe & The Juice

Eftirlætisjurtamjólk margra er nú mætt til leiks á Joe & …
Eftirlætisjurtamjólk margra er nú mætt til leiks á Joe & The Juice. Samsett mynd

Eftirlætisjurtamjólk margra er nú mætt til leiks á Joe & The Juice. Sproud jurtamjólkin hefur notið fádæma vinsælda hér á landi en hún er unnin úr hágæða baunapróteini.

„Hún hefur verið í sérstöku uppáhaldi hjá kaffibarþjónum enda loksins komin jurtamjólk  þar sem bragðgæði, hollusta og virðing fyrir umhverfinu haldast í hendur,“ segir Sólrún María Reginsdóttir hjá Akkúrat sem flytur Sproud inn. „Sú staðreynd að Sproud er unnin úr baunum, sem eru í grunninn próteinríkar, sykur- og kolvetnasnauðar skilar sér í þessari silkimjúku og ljúffengu jurtamjólk,“ segir Sólrún jafnframt.

Hollari og betri drykkir

Magnús Gunnarsson, rekstrarstjóri Joe & The Juice, segir Sproud og samstarfið við Akkúrat gera þeim kleift að gera góða drykki enn betri og hollari.
Joe & The Juice úti í heimi hefur verið að nota Sproud Barista jurtamjólkina undanfarna mánuði með góðum og jákvæðum undirtektum frá viðskiptavinum. Því lá beinast við að við myndum gera slíkt hið sama og bjóða upp á nýjan valmöguleika í jurtamjólk í okkar drykkjum.“ Hann segir Sproud ekki aðeins bragðast virkilega vel í kaffinu heldur passi hún einstaklega vel í vegan sjeikana. „Svo skemmir það ekki fyrir að hún inniheldur viðbætt steinefni og vítamín og aðeins 1/3 af kolvetnamagninu í Barista haframjólk,“ segir Magnús enn fremur.

Það sem gerir Sproud jurtamjólkina sérstaklega áhugaverða er hið einkar hversdagslega hráefni sem hún er unnin úr – baunaspírur. Baunaræktun krefst afar lítillar vatns- og orkunotkunar, ef miðað er við ræktun annarra jurtamjólkurhráefna á borð við soja og hafra. Baunin er þar að auki svolítil ofurhetja því baunaplöntur auka gæði og frjósemi jarðvegsins þar sem þær eru ræktaðar.

Gæði, bragð, hollusta og umhverfi

„Okkur þykir ótrúlega skemmtilegt að fara í þetta samstarf með Joe & The Juice sem kom fyrst fram með góðan skyndibita sem hugar á sama tíma að gæðum, bragði, hollustu og umhverfi. Það er líka alltaf svo skemmtilegt að fara til þeirra, sem gerir Joe & The Juice að fullkomnum stað fyrir Sproud,“ segir Sólrún að lokum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert