Smjörbaunir með grænkáli og tómötum

mbl.is/Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir

Hollur og góður réttur sem kemur skemmtilega á óvart, sítrusbragðið og tómatarnir koma skemmtilega út með beiskjunni í grænkálinu og parmesan osturinn gefur gott saltað bragð.

Smjörbaunir með grænkáli og tómötum

  • 4-5 msk. ólífuolía
  • 2 dósir smjörbaunir
  • 350-400 g kirsuberjatómatar eða aðrir smáir tómatar
  • u.þ.b. 250 g grænkál, stilkur tekinn frá og blöðin rifin niður
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. chili-fræ
  • 50-60 g pekanhnetur, ristaðar og gróft saxaðar
  • 1 sítróna, börkur og safi úr ½
  • 1 límóna, börkur og safi úr ½
  • 3 hvítlauksgeirar, skornir þunnt
  • ½ tsk. múskat, helst fersk múskathneta rifin yfir
  • 2-3 msk. graskersfræ, ristuð
  • 3-4 msk. rifinn ferskur parmesanostur
  • fersk basilíka, söxuð (má sleppa)

Aðferð: 

  1. Hitið 3 msk. af ólífuolíu á stórri pönnu á fremur háum hita.
  2. Hellið vökvanum frá smjörbaununum og skolið, gott að þerra þær aðeins.
  3. Steikið baunirnar á báðum hliðum þannig að þær brúnist vel, gott að salt aðeins.
  4. Takið baunirnar af pönnunni, setjið á fat til hliðar, hafið pönnuna á hitanum og setjið tómatana út í og steikið í 2-3 mínútur eða þar til þeir fara að mýkjast vel. Hér gæti þurft að bæta við olíu.
  5. Bætið nú grænkálinu saman við og steikið þar til kálið hefur minnkað í umfangi og er orðið mjúkt, saltið og setjið chili-flögurnar saman við ásamt múskatinu.
  6. Bætið hvítlauknum og pekanhnetunum saman við og steikið áfram í 1-2 mínútur.
  7. Setjið sítrusbörkinn út á pönnuna ásamt safanum.
  8. Bætið baununum varlega saman við og blandið vel, látið malla í 1-2 mínútur.
  9. Látið graskersfræin og rifinn parmesan ost ofan ásamt basilíkunni á áður en rétturinn er borinn fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert