Reykjavík Rocks, tveggja kvölda tónlistarhátíð í Egilshöll

Hljómsveitin Duran Duran.
Hljómsveitin Duran Duran. AP

Hátíðin Reykavík Rocks verður haldin í fyrsta skipti í sumar. Þetta er að sögn skipuleggjenda tveggja kvölda tónlistarhátíð, en fyrri tónleikarnir, með Duran Duran, fara fram fimmtudaginn 30. júní og hinir seinni, með Foo Fighters og Queens of the Stone Age, þriðjudaginn 5. júlí.

Hátíðin var kynnt á blaðamannafundi á Hótel Borg í gær. Aðstandendur hennar segja að hugmyndin sé nokkurra ára gömul. Markmiðið með hátíðinni sé að skapa árlega tónlistarhátíð í Reykjavík, sem bjóði upp á rjómann af þeim hljómsveitum sem komi fram á hátíðum í Evrópu, eins og Hróarskeldu, Glastonbury og Reading. "Tónlistarhátíð virðist í mörgum tilfellum vera meira spennandi kostur að mati tónlistarmannanna og gesta, auk þess að í faginu þykir tilvist slíkrar samkomu til marks um þroskaðan markað fyrir lifandi tónlistarflutning," segja aðstandendur hátíðarinnar.

Dave Grohl greip tækifærið

"Hugmyndin fór á flug sl. haust í viðræðum aðstandenda hátíðarinnar og fulltrúa nokkurra virtustu umboðsskrifstofa tónlistarfólks í heiminum í dag. Dave Grohl og félagar í Foo Fighters stukku strax á hugmyndina og sögðu að nú væri kærkomið tækifæri til að koma Reykjavík á hið stóra tónlistarhátíðarkort Evrópu yfir sumartímann. Þeir sögðust aldeilis ekki ætla að liggja á liði sínu í að koma Reykjavík Rocks á koppinn og melduðu sig inn strax. Dave Grohl hafði svo samband við félaga sína í Queens of the Stone Age, sem stukku einnig til. Duran Duran kom inn stuttu síðar og grundvöllur Reykjavík Rocks 2005 var tryggður."

Framkvæmd Reykjavík Rocks er viðamikil og að sögn aðstandenda fyrst og fremst möguleg sökum þess Grettistaks sem innlendir aðilar hafi undanfarin ár lyft í skipulagningu og framkvæmd stærri atburða á Íslandi. "Mikil sérþekking hefur skapast á örfáum árum hvað varðar alla framkvæmd og tæknilegar útfærslur í ört vaxandi innlendum iðnaði sem gefur erlendum ekkert eftir," segja aðstandendur Reykjavík Rocks.

Brotið blað

Þeir segja að með hátíðinni sé brotið blað í tónleikahaldi á Íslandi. "Hér með opnast möguleiki á að kynna á Íslandi annað og meira en bara enn eina tónleikana. Reykjavík Rocks verður með tíð og tíma spennandi viðbót við það sem gerir Ísland að spennandi viðkomustað ferðafólks og með öflugri kynningu er ljóst að Reykjavík verður hluti af tónlistarhátíðarflórunni í Evrópu."

Egilshöll verður skipt í tvö svæði bæði kvöldin, fremra og aftara og rúmar hún 10.000 gesti hvort kvöld. 2/3 af salnum verða notaðir undir tónleikasvæðið og þriðjungur undir ýmsa þjónustu við hátíðargesti, eins og sölu veitinga og minjagripa. Miðar á hátíðina verða í tveimur verðflokkum; miði sem gildir á bæði kvöldin kostar 9.900 krónur og tryggir aðgang að fremra svæðinu. 5.000 miðar verða í boði í þeim verðflokki og 5.000 á hvert kvöld í hinum verðflokknum, en aðgöngumiði á stakt kvöld kostar 5.900 krónur.

Foo Fighters

HVATAMAÐUR Foo Fighters er Dave Grohl, sem trommaði í hinni frægu gruggsveit Nirvana á sínum tíma. Hann stofnaði sveitina árið 1995, eftir sjálfsmorð söngvara Nirvana, Kurts Cobains, og hefur síðan gert Foo Fighters að jafnfrægu nafni og Nirvana. Grohl tók upp 15 lög með vini sínum nokkrum mánuðum eftir sjálfsmorð Cobains, setti þau á kassettu og gerði 100 eintök. Í kjölfarið fékk hann plötusamning og stofnaði hljómsveitina í stað þess að hefja sólóferil. Kassettan varð að fyrstu plötu Foo Fighters, samnefndri sveitinni. Á henni voru lög á borð við "This Is a Call" og "Big Me" og björninn var unninn.

Queens of the Stone Age

HLJÓMSVEITIN Queens of the Stone Age hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár fyrir frumlega rokktónlist, en lagið "No One Knows" var ofarlega á vinsældarlistum fyrir u.þ.b. tveimur árum. Trommuleikari í því lagi var einmitt góðvinur og aðdáandi sveitarinnar, Dave Grohl. Upphafsmaður QOTSA er hinn rauðhærði Josh Homme, en hann stofnaði hana á rústum rokksveitarinnar Kyuss, sem hætti starfsemi árið 1995. Fyrsta plata QOTSA, samnefnd sveitinni, kom út árið 1998 og tveimur árum seinna kom platan R. Songs of the Deaf kom út 2002 og nú er nýkomin platan Lullabies to Paralyze.

Duran Duran

ALLFLESTIR Íslendingar kannast við hljómsveitina Duran Duran, sem naut mikillar hylli á níunda áratugnum. Sveitin var stofnuð fyrir 27 árum og nú hafa upphaflegir meðlimir hennar; Simon Le Bon, Nick Rhodes, John Taylor, Andy Taylor og Roger Taylor, komið saman á ný. Duran Duran hefur nýlokið tónleikaferðalagi um Bandaríkin og á tónleikum tekur hún að sögn rjómann af lögum sínum, en á meðal vinsælustu tónsmíða fimmmenninganna eru "Careless Memories", "Hungry Like the Wolf", "Rio", "Save a Prayer", "Union of the Snake", "A View to a Kill", "Ordinary World" og "Come Undone".
Sérstök forsala á miðum sem gilda bæði kvöldin hefst kl. 11 laugardaginn 21. maí í verslunum 10-11 í Lágmúla, Austurstræti og Akureyri. Almenn miðasala hefst sunnudaginn 22. maí kl. 11 í öllum verslunum 10-11 og á reykjavikrocks.is. Nánari upplýsingar er að finna á reykjavikrocks.is.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir