Victoria Beckham, fyrrum Kryddpía, hefur gert opinskátt að hún muni verða brúðarmær þegar vinkona hennar, Elizabeth Hurley, gengur í hjónaband seinna á árinu.
Beckham sagði að Liz hefði beðið hana um að verða brúðarmær þegar hún gengur að eiga unnusta sinn, Arun Nayar, að því er Ananova greinir frá og hefur eftir The Sun.
„Elizabeth sagði að þegar hún kvænist verði ég brúðarmær hjá henni. Ég sagðist myndu veðja við hana að hún ætti eftir að láta mig klæðast einhverju hryllilega væmnu og vera í lágbotna skóm,“ sagði Victoria.