STOPP-leikhópurinn

STOPP-leikhópurinn

[ Heimasíða | Miðasala | 8987205 ]

Jólin hennar Jóru

Jólin hennar Jóru

Glænýtt jólaævintýri unnið undir áhrifum fra þjóðsögunum.

Leikritið segir frá Jóru litlu en hún er tröllastelpa sem býr upp í fjöllum. Einn daginn stelur hún jólakíkinum hans Skrepps en hann er einn besti aðstoðarmaður jólasveinanna. Allt er í pati því án kíkisins góða geta þeir ekki vitað hvort börnin séu þæg og góð til að fá í skóinn. Fer Skreppur því af stað til að hafa upp á kíkinum en það verður ekki auðvelt því Jóra er farinn til mannabyggða, að upplifa þessi jól sem allir eru að tala um.

Frumsýnt var í desember 2006.

Höfundar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.

Leikstjóri: Sigurþór Albert Heimisson.

Leikarar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir.

Leikmynd og búningar: Leikhópurinn.

Gítarleikur: Edwin Kaaber.

Ferðasýning fyrir 1-10 ára.

Sýningartími: 30 mínútur.

Sýningar hefjast 24.nóvember 2007

Til baka