Sjö látnir í Illinois

Frá skólanum í morgun en FBI vinnur að rannsókn málsins
Frá skólanum í morgun en FBI vinnur að rannsókn málsins Reuters

Fórnarlömb skotárásar í DeKalb háskólann í Norður-Illinois eru orðin sex talsins en einn nemandi lést í dag á sjúkrahúsi. Árásarmaður framdi sjálfsvíg eftir að hafa skotið á nemendur í fyrirlestrarsal með 140 nemendum. Árásarmaðurinn er fyrrverandi nemandi við skólann en ekki hefur verið greint frá nafni hans né ástæðu árásarinnar.

Öllu skólahaldi við skólann hefur verið aflýst og hefur nemendum við skólann verið boðin áfallahjálp auk þess sem þeir hafa verið beðnir um að hringja í fjölskyldur sínar. Staðfest hefur verið á heimasíðu skólans að árásarmaðurinn var nemandi í félagsfræði við skólann í fyrra en var ekki innritaður í vetur.

Háskólinn er í um 100 km fjarlægð frá Chicago í Illinois-ríki. Um 25.000 nemendur stunda nám við hann. Árásarmaðurinn var svartklæddur með dökk sólgleraugu er hann gekk inn í fyrirlestrarsal þar sem 140 jarðfræðinemendur sátu. Hann var vopnaður haglabyssu og tveimur skammbyssum. Eftir tveggja mínútna skothríð frá sviðinu framdi hann sjálfsvíg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert