Von á óvenju góðu ítölsku víni í ár

Ítalskir vínframleiðendur geta glaðst yfir gæðum framleiðslunnar í ár
Ítalskir vínframleiðendur geta glaðst yfir gæðum framleiðslunnar í ár Reuters

Ítölsku vínþrúgurnar eru óvenju góðar í ár og er fastlega gert ráð fyrir því að árgangurinn 2009 verði góður en um leið verði framleiðslan lítil. Skýrist það af miklum hitum í sumar og miklu regni síðari hluta sumars.

Alls er talið að framleiðslan verði 44,5 hektólítrar, 4% minni heldur en spáð hafði verið. Í fyrra var framleiðslan 46,3 milljónir hektólítra.

Giuseppe Martelli, forseti samtaka ítalskra vínframleiðenda, segir að gæði vínsins séu einstaklega mikil í ár og þá sérstaklega í norður- og miðhluta landsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert