Fólk aflimað nánast á færibandi

Særðir Haítí búar jafna sig eftir aðgerðir í tjaldi belgískra …
Særðir Haítí búar jafna sig eftir aðgerðir í tjaldi belgískra lækna WOLFGANG RATTAY

Franski læknirinn Jacques Lorblanches sem sinnir nú fórnarlömbum jarðskjálftans á Haítí segist hafa misst tölu á því hversu marga hann hafi aflimað síðustu tvo sólarhringana. Hann segir hinsvegar í samtali við fréttaritara AFP að hann muni aldrei nokkurn tíma gleyma þeim hræðilegu kringumstæðum sem hann hafi framkvæmd aðgerðirnar við.

„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt, sýkt sár full af lirfum." Skurðlæknirinn lýsir aðstöðunni, í bráðabirgðasjúkraskýli úti á víðavangi, við blóðugan 19. aldar orrustuvöll. "Ég framkvæmdi fyrstu aflimunina með þremur læknatöngum, fimm skærum og skurðarhníf, án vatns og bara með vasaljós til að lýsa upp meiðslin," segir Lorblanches. Hann var sendur til Haítí ásamt hópi lækna frá samtökunum Doctors of the World.

Íbúar Port-au-Prince hafa undanfarna viku upplifað algjöra martröð eftir að jarðskjálftinn lagði höfuðborgina og fleiri svæði í rúst. Margir þeirra sem voru svo heppnir að lifa skjálftann gengu beint inn í aðra martröð þegar fjarlægja þurfti einn eða fleiri útlimi. Jafni þeir sig eftir aðgerðirnar bíður þeirra að öllum líkindum líf markað af gríðarlegri fátækt, að sögn AFP.  

Frá því frönsku læknarnir komu á staðinn á laugardag hafa 28 af 30 aðgerðum þeirra endað með aflimun. Grátbiðjandi ættingjar flytja hina slösuðu til læknanna í hjólbörum eða á frumstæðum sjúkrabörum sem gerðar eru úr hurðum hruninna húsa.  

Í búðum frönsku læknana ræðir AFP við haítísku stúlkuna Marie-Francoise þar sem hún liggur kvalin eftir að hafa misst annan handlegginn. Foreldrar hennar dóu þegar heimili fjölskyldunnar hrundi til grunna. Sjálf lá Marie-Francoise klukkustundum saman föst undir rústunum en var á endanum bjargað af nágrönnum sínum. „Ég er glöð yfir að vera á lífi, en ég get ekki hugsað um framtíðina. Ég hef misst allt og ég get ekki unnið," hefur AFP eftir grátandi stúlkunni.

Í hverfinu fátækrahverfinu Carrefour liggja tugir manna særðir og deyjandi á götum úti og hafa verið þar klukkustundum, jafnvel dögum saman, undir steikjandi sólinni og bíða þess að fá hjálp. Inni í tjaldi í nágrenninu eru aflimanir framkvæmdar nánast á færibandi.

„Það er drepi í öllu og við aflimum fólk á hlaupum" segir Hans Van Dillen, sem lengi vel var yfirlæknir Lækna án landamæra. Hann segir orðið daglegt brauð að framkvæma allt að 100 skurðaðgerðir daglega við skelfilegar aðstæður. Verkefnin séu hreinlega yfirþyrmandi fyrir alla lækna á svæðinu.

 
Drengur frá Haítí grætur af sársauka þar sem belgískir læknar …
Drengur frá Haítí grætur af sársauka þar sem belgískir læknar hlúa að honum eftir að fjarlægja þurfi af honum aðra höndina. WOLFGANG RATTAY
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert