Aska skemmdi orrustuþotu NATO

F-16 orrustuþota tekur eldsneyti í háloftunum. Myndin er úr myndasafni.
F-16 orrustuþota tekur eldsneyti í háloftunum. Myndin er úr myndasafni. AP

Skemmdir urðu á hreyflum að minnsta kosti einnar F-16 orrustuflugvélar Atlantshafsbandalagsin, NATO, vegna gosösku úr Eyjafjallajökli. Askan ummyndaðist í glerung í hreyflinum, að því er fram kemur í frétt Aftenposten.

Bandarískur talsmaður NATO sagði í Brussel í dag að frumvarnarviðbúnaður NATO verði fyrir áhrifum dragi ekki fljótlega úr öskunni yfir Evrópu. Hann vildi ekki upplýsa nánar um hvar eða hvenær skemmdir urðu á F-16 þotunni.

Sem kunnugt er urðu finnskar orrustuþotur af gerðinni F-18 Hornet fyrir miklum skemmdum við að fljúga í gegnum eldfjallaösku í háloftunum.

Askan bráðnar í hreyflunum og myndar eins konar glerhjúp sem sest á innviði hreyflanna veldur því m.a. að loftvegir þeirra stíflast. Hætt er við að hreyflarnir ofhitni og stöðvist af völdum skemmdanna sem askan veldur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert