Yfirvöld í Malí hafa staðfest að fyrsta ebólu tilfellið sé komið upp þar í landi. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu er sú sýkta tveggja ára gömul stelpa sem nýverið kom til landsins eftir heimsókn til Gíneu.
Yfir 4.800 hafa látist af völdum veirunnar, sem geisar nú harðast í Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne.
Veiran smitast með blóði og líkamsvessum og ekkert bóluefni er til gegn henni. Tölur um hlutfall þeirra sem látast af völdum hennar eru nokkuð mismunandi, en yfirleitt er talað um að 2/3 þeirra sem sýkist af veirunni látist innan nokkurra daga.