Zahid Hamidi, innanríksráðherra Malasíu, greindi frá því í morgun að fjöldagrafir hefðu fundist í norðurhluta landsins, í grennd við búðir á vegum glæpahópa sem stunda mansal.
Hamidi sagði að grafirnir hefðu fundist nálægt landamærum Malasíu og Taílands. „En við vitum ekki hversu mörg lík eru þarna. Við eigum örugglega eftir að finna fleiri,“ sagði ráðherrann við dagblaðið The Star.
Malasíska dagblaðið Utusan Malaysia greindi frá því að um þrjátíu fjöldagrafir hefðu fundist á svæðinu og að þar væri að finna hundruð beinagrinda.
Að sögn heimildarmanna blaðsins fundust þar meðal annars lík Rohingya-múslima.
Á undanförnum árum hafa þúsundir Rohingya-múslíma lagt í hættulegar ferðir frá Búrma í leit að betra lífi. Margir vonast til að komast til Malasíu, þar sem múslímar eru í miklum meirihluta, en margir hafa lent í klóm glæpahópa sem stunda mansal í Taílandi.
Sameinuðu þjóðirnar segja að Rohingya-múslímar séu á meðal þeirra hópa í heiminum sem þurfa að þola gríðarlega miklar ofsóknir.