Maðurinn var starfsmaður Apple

AFP

Maðurinn sem svipti sig lífi í húsnæði Apple í gær var 25 ára starfsmaður fyrirtækisins, Edward Mackowiak.

Frá þessu greinir Gizmodo sem segir manninn hafa verið hugbúnaðarverkfræðing. Miðillinn segir skotvopn hafa fundist á staðnum. Mackowiak fannst látinn í fundarherbergi.

Frétt mbl.is: fannst látinn í höfuðstöðvum Apple

„Við erum miður okkar yfir að hafa misst ungan og hæfileikaríkan samstarfsmann með svo hörmulegum hætti. Hugur okkar og dýpsta samúð er hjá fjölskyldu hans og vinum, þar á meðal þeim fjölmörgu sem hann vann með hér hjá Apple. Við erum að vinna að því að styðja við þau hvernig sem við getum á þessum erfiða tíma,“ segir í yfirlýsingu Apple um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert