Þrír Tyrkir á meðal látinna

AFP

Þrír Tyrkir eru á meðal þeirra sem létu lífið í skotárásinni í þýsku borginni München í gær, að sögn Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, tveir unglingar og ein kona.

Þá féll einn Grikki fyrir hendi árásarmannsins, hins 18 ára Ali David Sonbolys.

Þýskir fjölmiðlar hafa einnig greint frá því að þrjú fórnarlambanna hafi verið frá Kósóvó. Yfirvöld hafa ekki enn staðfest það.

Sonboly skaut níu til bana áður en hann tók sitt eigið líf fyrir framan Olympia-verslunarmiðstöðina í borginni síðdegis í gær.

Lögreglan í Bæjaralandi greindi frá því í dag að Sonboly hefði gengist undir læknismeðferðir vegna þunglyndis. Hann tengdist líklegast ekki skipulögðum hryðjuverkasamtökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert