Snjöll tík leikur á alla

Sue er mjög klár. Hún elskar að leika sér með …
Sue er mjög klár. Hún elskar að leika sér með bolta. Skjáskot/YouTube

Border Collie-hundar eru sagðir með greindari hundum og ekki er hægt að neita því að tíkin Sue sem býr í Hollandi hefur fundið leið til að fá alla til að leika við sig.

Sue er gjarnan úti í garði sem er við göngustíg. Þegar einhver fer hjá, hjólandi eða gangandi, sækir hún boltann sinn og kastar honum yfir grindverkið í þeirri von að vegfarendurnir sæki hann og kasti til baka.

Margir halda að hún hafi einfaldlega týnt boltanum, gert þetta óvart. En svo er ekki. Hún er einfaldlega að fá fólk til að leika við sig.

Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert