Bandaríska orðabókin Merriam-Webster hefur valið femínisma orð ársins vegna mikillar aukningar í leit að orðinu á vefnum.
Í tilkynningu vegna valsins kemur fram að áhugi á hugtakinu hafi aukist í kjölfar kröfugangna kvenna á árinu, nýrra sjónvarpsþátta og kvikmynda um mál sem tengjast konum og bylgju mála sem fjalla um kynferðislegt áreiti.
70% fleiri leituðu að orðinu í ár heldur en í fyrra.
Orðabókin skilgreinir femínisma sem „kenningu um pólitískt, efnahagslegt og félagslegt jafnrétti kynjanna.“
Fjöldi kvenna víða um Bandaríkin fór í kröfugöngu þegar Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna í janúar. Skipuleggjendur sögðu réttindi kvenna í hættu eftir kjör Trumps.
Í febrúar var aftur bylgja í leit að femínisma þegar Kellyanne Conway, ráðgjafi Trumps, sagði að hún væri ekki femínisti. Hún sagðist einfaldlega ekki hafa neitt á móti körlum og að hún væri ekki fylgjandi fóstureyðingum.
„Orðið var á allra vörum,“ sagði Peter Sokolowski, aðstoðarritstjóri Merriam-Webster. Aftur varð aukning á leit að femínisma á vefnum í kjölfar #MeeToo-byltingarinnar í haust.