Í frétt <span><a href="http://unt.se/nyheter/uppsala/knarkbeslaget-kan-vara-vart-30-miljoner-4874484.aspx" target="_blank">Upsala Nya Tidning</a> kemur fram að eiturlyfin metin á 30 milljónir sænskra króna, sem svarar til 386 milljóna íslenskra króna. Lögreglan hafi ekki upplýst um tegundir sem gerðar voru upptækar en heimildir blaðsins herma að meðal annars hafi verið um tramadol að ræða. </span>
Lyfið er skráð sem eiturlyf í Svíþjóð en það er ópíóíða-lyf sem er verkjastillandi en blaðið segir að sprenging hafi orðið í smygli á tramadol til landsins.
Tveir menn, 24 og 30 ára, eru í haldi lögreglu grunaðir um alvarlegt fíkniefnalagabrot. Eldri maðurinn er einnig grunaður um ólöglegan vopnaburð. Báðir neita sök.
</div>