Nashyrningurinn Sudan, sem var síðasta karldýrið af sinni tegund, er allur. Sudan var af annarri af tveimur undirtegundum hvíta nashyrningsins. Hann var 45 ára.
Fréttir bárust af alvarlegum veikindum hans fyrir nokkrum vikum. Vegna fágætis síns var hann vaktaður af vopnuðum vörðum allan sólarhringinn í dýrafriðlandi í Kenía.
Sudan hélt til í friðlandi Ol Pejeta í Kenía frá árinu 2009 ásamt tveimur kvendýrum, þeim Fatu og Najin. Þær eru síðustu kvendýrin af þessari nashyrningstegund sem fyrirfinnast í heiminum.
Fimm tegundir nashyrninga finnast í heiminum og þær eru allar í mikilli útrýmingarhættu vegna veiða. Veiðiþjófar ásælast horn þeirra en þau eru seld fólk í Asíu og víðar sem trúir því í einfeldni sinni að efni í þeim auki kyngetu. Slíkt hefur ítrekað verið afsannað. Efnið er það sama og finnst í fingurnöglum.
Aðeins er talið að um 30 þúsund nashyrningar séu samanlagt til í heiminum en áður er talið að milljónir þeirra hafi fundist á sléttum Afríku og í Asíu.
Vonir höfðu staðið til þess að Sudan og annað hvort kvendýrið myndu falla hugi saman og geta af sér afkvæmi. En slíkt varð því miður ekki að veruleika.
Í fyrra fannst svo sár á einum fæti Sudans sem talið er mega rekja til aldurs hans. Dýralæknum tókst að koma í veg fyrir frekari sýkingu í því. Heilsa hans batnaði til muna og var hann hress í janúar og allt fram í miðjan febrúar. En þá fannst annað sár og mun dýpra en það fyrra. Dýralæknar ákváðu því að aflífa hann til að lina þjáningar hans.
Þó að ekki hafi tekist að fjölga nashyrningum af tegund Sudans með náttúrulegum hætti eru hafnar tilraunir með að fá staðgöngumóður af annarri undirtegund til verksins.