Lögreglan drap byssumanninn

Gíslatakan fór fram í stórmarkaði í bænum Trèbes.
Gíslatakan fór fram í stórmarkaði í bænum Trèbes. Kortt/Google

Franska lögreglan hefur drepið byssumanninn sem skaut að minnsta kosti þrjá til bana og særði tvo til viðbótar er hann tók fólk í gíslingu í suðvesturhluta Frakklands.

Lögreglumaður sem átti þátt í að frelsa gíslana í stórmarkaðinum í bænum Trebes særðist í lögregluaðgerðinni þegar byssumaðurinn var drepinn, að sögn heimildarmanns AFP-fréttastofunnar.

Lögreglan lokar veginum til Trebes.
Lögreglan lokar veginum til Trebes. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert