Útlit er fyrir að Írar samþykki að afnema stjórnarskrárákvæði sem kveður á um bann við fóstureyðingu. Þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram í landinu í dag og hefur kjörstöðum verið lokað. Kjósendur voru spurðir hvort þeir vilji afnema grein 40.3.3, sem er betur þekkt sem áttunda breyting stjórnarskrárinnar, sem síðan árið 1983 hefur metið líf ófædds fósturs og ófrískrar konu að jöfnu.
Samkvæmt útgönguspám verður breytingin samþykkt með 68% atkvæða. 32% eru á móti breytingunni. Niðurstöðurnar eru byggðar á könnun meðal 4.000 kjósenda sem Irish Times lét framkvæma. Verði þetta niðurstaðan mun hún hafa áhrif á líf þúsunda kvenna og verður hún jafnframt til marks um minnkandi áhrif kaþólsku kirkjunnar í landinu. Um 78% Íra eru kaþólskir.
Verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar að afnema eigi ákvæðið segist ríkisstjórnin ætla að leggja fram löggjöf sem leyfi ótakmarkaðar fóstureyðingar á fyrstu tólf vikum meðgöngu.
Kosningaþátttaka hefur verið góð og um miðjan dag var þátttakan meiri en þegar þjóðaratkvæðagreiðsla um samkynja hjónabönd fór fram og í síðustu þingkosningunum. Fyrstu tölur benda til þess að kosningaþátttaka hafi verið um 73%.
Samkvæmt núgildandi lögum eru fóstureyðingar aðeins heimilar á Írlandi ef lífi móður er stefnt í hættu. Það hefur haft það í för með sér að þúsundir írskra kvenna hafa farið til Englands á hverju ári til að fara í fóstureyðingar.
Talning atkvæða hefst ekki fyrr en á morgun og búast má við að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggi fyrir eftir hádegi á morgun.