Norður-Kórea mun loka helsta tilrauna- og skotpallasvæði sínu fyrir eldflaugatilraunir, að því er BBC hefur eftir Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu. Þeir Moon og Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, funduðu í höfuðborg Norður-Kóreu, Pyongyang, í gær og segir Moon þá hafa náð samkomulagi um leið að afvopnavæðingu kjarnavopna á Kóreuskaga.
Kim hefur þá lýst fundinum sem „stökki fram á við“ í átt að hernaðarfriði á svæðinu.
Þá kvaðst hann einnig vonast til að heimsækja Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, í nánustu framtíð. Verði af heimsókninni þá verður það í fyrsta skipti sem leiðtogi Norður-Kóreu heimsækir Seoul frá skiptingu Kóreuskagans.
Helsta áherslumál fundarins var þó afvopnavæðing kjarnavopna. Kim og Donald Trump Bandaríkjaforseti komust að samkomulagi um afvopnavæðingu á leiðtogafundi sínum í Singapore í júní, en verulega hefur hægt á viðræðum um útfærslu afvopnavæðingarinnar undanfarið.
Sagði Moon Kim hafa fallist á að loka endanlega Tongchang-ri-tilraunasvæðinu og að þetta yrði gert í viðurvist sérfræðinga frá þeim þjóðum sem ættu aðild að málinu svo þeir gætu sannreynt að ekki væri hægt a nota svæðið.
Þá hefði Kim einnig fallist á að loka kjarnorkumannvirkjunum í Yongbyon, en þar er talið að Norður-Kórea hafi framleitt efnin fyrir kjarnorkuprófanir sínar. Þetta væri þó þeim skilyrðum háð að bandarísk stjórnvöld gripu til gagnkvæmra aðgerða, en ekki var greint frá hverjar þær væru.