Felix Tshisekedi, sonur fyrrverandi leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Austur-Kongó, hefur verið lýstur sigurvegari forsetakosninga í landinu af æðsta dómstól landsins.
Beðið hefur verið með óþreyju eftir lokaniðurstöðu forsetakosninganna sem fram fóru 30. desember.
21 var í framboði en ásamt Tshisekedi voru Emannuel Ramazani Shadary, fyrrverandi innanríksiráðherra landsins, og Martin Fayulu, fyrrverandi forstjóri olíufyrirtækis, taldir sigurstranglegir.
Martin Fayulu krafðist nýverið endurtalningar á atkvæðunum sem greidd voru í kosningunum, en bráðabirgðaniðurstöður gáfu til kynna að Felix Tshisekedi hefði hlotið 38,57% atkvæða, en Fayulu 34,8%.
Fayulu og Tshisekedi tilheyra báðir stjórnarandstöðuflokkum landsins, en Emmanuel Ramazani Shadary, frambjóðandi stjórnarflokksins, varð þriðji í kjörinu með einungis 23,8%.
Úrslitin komu mörgum á óvart, þar sem flestar kannanir sem gerðar höfðu verið í aðdraganda kosninganna bentu til þess að Fayulu yrði hlutskarpastur, en kaþólska kirkjan sagði fljótlega eftir kjörið að niðurstaðan passaði illa við þær útgönguspár sem eftirlitsmenn hennar í kosningunum hefðu látið gera.
Tshisekedi mun því taka við embætti forseta Austur-Kongó af Joseph Kabila sem hefur verið forseti um langt árabil.