26 létust í árás á þorp í Malí í gærkvöldi.
Árásin var gerð á þorp Fúla þjóðarbrotsins, Binedama í Mopti-héraði.
Þá létust fjórir fangar og átta særðust í höfuðborg Malí Bamako í gær í því sem yfirvöld hafa kallað „uppreisn“. Atvikið átti sér stað á meðan fjöldi borgara mótmælti ríkisstjórn landsins í höfuðborginni.
„Einhverjir fangar urðu of spenntir og brutust út úr klefum sínum og réðust á fangaverði,“ segir Yaya Sangare, talsmaður ríkisstjórnarinnar.
Sangare segir að engir fangar hafi sloppið úr fangelsinu í uppþotinu og að fangavörðum hafi fljótlega tekist að yfirbuga fangana.