Aurskriða hreif með sér hluta þjóðvegarins E6 á Kråknesi í Finnmörku í Norður-Noregi í nótt. Aðeins eru tveir dagar frá því önnur skriða hreif með sér átta hús á svæðinum en vegir á svæðinu hafa verið lokaðir síðan þá.
Lögreglu barst tilkynning um skriðuna klukkan 01:47 aðfaranótt laugardags en Leo Johansen, lögregluþjónn í Finnmörku, segir í samtali vð norska ríkisútvarpið, NRK, að talið sé að skriðan hafi verið um 30-40 metra há og um 50 metrar á breidd. Engin hús eyðilögðust að þessu sinni og ekkert fólk var nærstatt enda svæðið fjarri alfaraleið. Talið er að skriðan gæti hafa fallið sólarhring áður en tilkynning barst þess efnis.
Anders Bjordal, yfirverkfræðingur hjá Vatns- og orkumálastofnun Noregs (NVM), flaug dróna yfir svæðið í eftirmiðdaginn. „Maður sér skriðuna ekki frá neinu sjónarhorni nema úr dróna, en aðfaranótt föstudags hafði einn af vaktmönnum frá Securitas heyrt í skriðu og séð stórar bárur í sjónum,“ segir Bjordal við NRK.