Bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer/BioNTech virkar vel gegn afbrigðum Covid-19 sem komið hafa upp í Bretlandi og Suður-Afríku. Forsvarsmenn fyrirtækjanna greindu frá þessu í yfirlýsingu.
Í yfirlýsingunni kemur fram að örlítill munur sé á prófunum við veirunni og áðurnefndum afbrigðum og afskaplega litlar líkur á því að bóluefnið virki verr gegn þeim.
Ekkert bendi til þess að ný bóluefni þurfi til að takast á við afbrigðin en í yfirlýsingu Pfizer/BioNTech kemur fram að fyrirtækin bregðist við ef það verði raunin.
Áður hafði lyfjafyrirtækið Moderna sagt að bóluefni þess virki vel gegn afbrigðunum.