Laug um kennara sem var síðar afhöfðaður

Fjöldi fólks lagði blóm og teikningar við skólann þar sem …
Fjöldi fólks lagði blóm og teikningar við skólann þar sem Samuel Paty kenndi. AFP

Skólastúlka, sem sem kom af stað hatursherferð á netinu gegn kennara eftir að hann sýndi nemendum sínum skopmyndir af Múhammeð spámanni, hefur viðurkennt að hafa logið og dreift fölskum fullyrðingum um hann, sagði lögfræðingur hennar í dag. 

Stúlkan hafði haldið því fram að kennarinn, Samuel Paty, sem var afhöfðaður af íslömskum öfgamanni í október í fyrra, hefði beðið múslima um að yfirgefa skólastofuna þegar hann sýndi nemendum myndirnar. 

Faðir stúlkunnar lagði síðar fram kvörtun vegna málsins og magnaði upp ásakanirnar á netinu sem varð til þess að 18 ára flóttamaður, ættaður frá Tsjet­sjen­íu, leitaði Paty í bænum Conflans-Sainte-Honorine, norðvestur af París.  

Árásarmaðurinn var skotinn til bana af lögreglumönnunum skömmu eftir árásina. 

Var ekki í tímanum

Lögmaður stúlkunnar segir hana hafa logið vegna þess að bekkjarfélagar hennar hefðu beðið hana um að sinna hlutverki talsmanns. 

Paty sýndi skopmyndirnar, sem birtust fyrst í tímaritinu Charlie Hebdo og þykja móðgandi af mörgum múslimum, í tíma þar sem nemendur ræddu málfrelsi og guðlast. 

Stúlkan, sem þegar hafði verið hótað brottvísun vegna agavandamála, var ekki í tímanum. 

Hún hefur síðan verið ákærð fyrir rógburð en faðir hennar hefur verið ákærður fyrir hlutdeild í morðinu á Samuel Paty. 

Drög að nýjum öryggislögum eru  til umræðu á franska þinginu en verði þau samþykkt myndi það varða fangelsi að birta upplýsingar á netinu um opinberan starfsmann vitandi að það gæti valdið þeim skaða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert