Drónaárás var gerð á flugvöll í Kursk-héraðinu í Rússlandi sem liggur við landamæri Úkraínu, samkvæmt upplýsingum frá rússneskum yfirvöldum.
Við árásina kviknaði í olíubirgðatanki í grennd við flugvöllinn, að sögn héraðsstjórans Roman Staravojt, sem greindi frá atburðinum á samfélagsmiðlum.
Hann tekur fram að ekkert mannfall hafi orðið en tilgreindi þó ekki hver bæri ábyrgð á árásinni.
Rússar sökuðu Úkraínumenn í gær um að hafa ráðist á tvo herflugvelli í Rússlandi, annan í nágrenni borgarinnar Rjasan og hinn í Saratov.
Rússar segjast hafa skotið niður drónana en hluti úr þeim hafi fallið til jarðar og sprungið með þeim afleiðingum að þrír létust.