Auðkýfingurinn Elon Musk gaf í skyn að notkun hans á Ketamíni væri fjárfestum Tesla í hag frekar en áhyggjuefni í viðtali sem hann birti á samfélagsmiðlinum X.
Ketamín er svæfingarlyf sem einnig getur kallað fram ofskynjanir og er því einnig notað sem vímuefni. Hefur það einnig notið nokkurra vinsælda á síðustu árum að nota efnið í litlum skömmtum til að vinna bug á geðrænum kvillum og áfengissýki.
Fyrr á árinu komust sögur á kreik um að vímuefnanotkun Musk væri farin að hafa veruleg áhrif á starfsgetu hans, en átta starfsmenn eru sagðir hafa sent opið bréf til nokkurra framkvæmdastjóra SpaceX-fyrirtækisins og lýst yfir áhyggjum vegna hegðunar hans.
„Ketamín er gagnlegt til að koma manni út úr neikvæðu hugarástandi,“ sagði Musk við fyrrverandi fréttamann CNN, Don Lemon, í viðtali.
Sagðist Musk ekki telja að hann væri með langvarandi þunglyndi heldur tæki lyfið þegar hann væri í „neikvæðu efnafræðilegu ástandi“ en tók sérstaklega fram að hann misnotaði ekki efnið heldur tæki lítinn skammt um það bil einu sinni í viku.
Kvaðst hann hvorki neyta áfengis né reykja gras og vera „nánast alltaf“ edrú þegar hann birtir hugleiðingar sínar seint á kvöldi á samfélagsmiðli sínum X.
Spurður hvort notkun hans á efninu geti ekki haft áhrif á álit fjárfesta kvaðst Musk ekki hafa áhyggjur.
„Við vorum með mest selda bílinn í heiminum í fyrra. Þannig frá sjónarmiði fjárfesta, ef ég er að taka eitthvað þá ætti ég að halda áfram að taka það.“