Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd í átján mánaða fangelsi eftir að hafa verið gripin af tollinum í Gvadelúpeyjum í karabíska hafinu með um tvo kíló af kókaíni í fléttuhárlengingum sínum.
Konan er frá Gvæjana í Suður-Ameríku og var gómuð í mars síðastliðnum.
Konan geymdi fíkniefnin í slöngum sem hún vafði fléttuhárlengingum utan um að sögn tollstjóra þar í landi í samtali við fréttastofu AFP.
Er henni gert að sæta 18 mánaða fangelsi og var sektuð um 30.000 evrur.