Háttsettur embættismaður innan raða hryðjuverkasamtakanna Hamas greinir AFP-fréttaveitunni frá því að brugðist verði við tillögu Ísraels um vopnahlé á Gasa á morgun í Egyptalandi.
Sendinefnd Hamas undir stjórn Khalil al-Hayya, varaforseta pólitíska hluta Hamas, mun fara til Egyptalands á morgun og greina frá viðbrögðum samtakanna við vopnahléstillögu Ísraels á fundi nefndarinnar með egypskum embættismönnum.
Annar heimildarmaður AFP sagði að samtökin væru opin fyrir því að ræða tillöguna, sem virðist vera jákvæð þróun.
Í vikunni fór sendinefnd Egypta til Ísraels til þess að koma viðræðum á skrið.
Egyptar, Katarar og Bandaríkjamenn hafa reynt með milligöngu að koma á vopnahléi frá því að átökin hófust 7. október. Í nóvember náðist vopnahlé sem stóð yfir í viku. Þá voru 80 ísraelskir gíslar látnir lausir og 240 Palestínumenn látnir lausir úr ísraelskum fangelsum.
Nú virðist þó hafa orðið framfarir í viðræðum um vopnahlé og lausn gísla á Gasa síðustu daga.
Bandaríski fjölmiðilinn Axios hefur eftir tveimur ísraelskum embættismönnum að tillaga þeirra felist í vilja til þess að ræða sjálfbæran frið á Gasa eftir lausn gísla.
Samkvæmt Axios er þetta í fyrsta sinn síðan stríðið hófst sem ísraelskir leiðtogar hafa gefið það í skyn að þeir séu tilbúnir til þess að ræða endalok stríðsins.
1.170 manns létust í hryðjuverkaárás Hamas 7. október. Ísraelsmenn telja að 129 séu enn í haldi Hamas á Gasa, 34 þeirra eru taldir látnir.
Rúmlega 34 þúsund Palestínumenn hafa látist á Gasa frá því að stríðið hófst, að sögn Hamas.