Fimmtán ára piltur og 64 ára gamall maður frusu til bana í austurhluta Ungverjalands í vonskuveðri sem gekk yfir landið um helgina. Drengurinn fannst úti á götu á sunnudag en maðurinn fannst í garði sínum á laugardag.
Fyrsti snjór vetrarins féll í Ungverjalandi í síðustu viku og fór frostið niður í 10 gráður á celsíus. Síðasta vetur frusu 316 manns til bana í Ungverjalandi. Flestir þeirra voru heimilislausir.