Dæmdur til dauða fyrir að nauðga og myrða 11 ára stúlku

Fyrrverandi bifvélavirki sem fundinn var sekur um að hafa numið ellefu ára stúlku á brott, nauðgað henni og myrt hana, var í dag dæmdur til dauða í Sarasota á Flórída. Brottnámið náðist á myndband eftirlitsmyndavélar og leiddi það til þess að maðurinn var handtekinn. Í síðasta mánuði baðst maðurinn fyrirgefningar á glæpum sínum. Hann sagðist hafa neytt heróíns og kókaíns í því skyni að fyrirfara sér, áður en hann nam stúlkuna á brott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert