Félag grunnskólakennara vill að samræmd próf í grunnskólum verði lögð niður

Félags grunnskólakennara (FG) leggur til við menntamálaráðuneytið að samræmd próf í grunnskólum verði lögð niður, en ályktun þess efnis var samþykkt á aðalfundi FG sem haldinn var á Selfossi 18. og 19. febrúar.

Í ályktuninni segir að með vaxandi þróun í átt að einstaklingsmiðuðu námi síðustu ár og framtíðarsýn fræðsluyfirvalda í þá átt hafi samræmd próf ekki þann tilgang og vægi sem þeim var ætlað í upphafi heldur gangi í raun þvert á þá stefnu.

„Samræmd próf eru í dag orðin markmið skólastarfs og stýring í stað þess að vera uppbyggilegt mælitæki fyrir áframhaldandi starf. Félag grunnskólakennara leggur áherslu á fjölbreytt námsmat sem nær til margra þátta s.s. þekkingar, skilnings, leikni og framfara. Einnig þarf að meta áhuga, virkni, vinnubrögð og hæfileika til samstarfs. Samræmd próf í núverandi mynd gefa mjög takmarkaða mynd af hæfni nemenda og eru fremur til þess fallin að mismuna þeim. Niðurstöður samræmdra prófa eru oft rangtúlkaðar og jafnvel notaðar til að meta gæði skóla sem hefur aldrei verið markmið þeirra,“ segir í ályktuninni.

Ennfremur segir að samræmd próf í 4. og 7. bekk leggi óeðlilegar kröfur á nemendur og geti haft mjög neikvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra.

Samræmd próf í 10. bekk gagnist grunnskólanum ekki og séu í raun orðin inntökupróf í framhaldsskóla. „Mun eðlilegra er að framhaldsskólar meti sjálfir hvort nemendur standist inntökuskilyrði,“ segir í ályktuninni.

Er því bætt við að með niðurfellingu samræmdra prófa megi komast hjá því að mikill tími skólastarfs fari í að kenna fyrir prófin eins og nú er gert.

Telur FG að í stað samræmdra prófa sé eðlilegra að leggja áherslu á stöðluð, greinandi stöðupróf sem nemendur geti leyst þegar þeir séu reiðubúnir. Slík próf veiti nemendum betri upplýsingar um stöðu sína og byggi því fremur upp en brjóta niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert