Tveir ökumenn voru í kvöld stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, annar ók á 136 km hraða. Lögreglan á Hvolsvelli
Tekinn á 136 km hraða í kvöld
Versnandi veður á fjallvegum
Versnandi veður verður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli frá því um kl. 21 til 22 í kvöld og fram á nóttina. Meira
Tilkynnti úrsögn úr félaginu
Dominique Plédel, rekstraraðili Vínskólans, hefur sagt sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í mótmælaskyni. Framkvæmdastjóri félagsins staðfestir úrsögnina, en segir að lítið sé um úrsagnir undanfarna daga. Meira
Grindavík vann
Grindavíkurbær fór með sigur af hólmi í Útsvari í kvöld í keppni sinni við Skagafjörð. Vinningsliðið var með 110 stig, en Skagfirðingar með 57 stig. Meira
Munu skoða lífeyrissjóðina
Embætti sérstaks saksóknara mun ræða skýrsluna um lífeyrissjóðina, sem birt var í dag, á næsta fundi sínum með Fjármálaeftirlitinu. Sérstakur saksóknari segir þó of snemmt að segja til um það hvort hún gefi tilefni til rannsóknar hjá embættinu. Meira
Mikill skákáhugi hjá stúlkum
Milli 60 og 70 stúlkur taka þátt í Íslandsmóti grunnskólasveita, stúlknaflokki, sem fram fer í Rimaskóla á morgun, laugardaginn 4. febrúar. Nú eru fimmtán sveitir skráðar til leiks, mun fleiri en á síðasta ári. Meira
RÚV vann verðlaun
Vefur RÚV, ruv.is, var valinn besti afþreyingar- og fréttavefurinn af Samtökum vefiðnaðarins í kvöld. Í úrskurði dómnefndar segir að vefurinn sé tæknilega vel útfærður og aðgengilegur og að fáir vefir standi jafnfætis ruv.is þegar komi að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi. Meira
Fíkniefni fundust í Þorlákshöfn
Fíkniefni fundust við húsleit í Þorlákshöfn í dag, skv. upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Um var að ræða 1-2 grömm af kannabisefnum og tvö grömm af amfetamíni. Meira
Margir aka á strætórein
Töluvert er um að ökumenn virði ekki lög um notkun akbrauta, en þau kveða m.a. á um að þar sem sérstakar reinar eru fyrir mismunandi tegundir ökutækja skuli ökumaður nota þá rein, sem ökutæki hans er ætluð. Meira
PIP-fyllingar verði fjarlægðar
Landlæknir telur að fjarlægja eigi PIP-brjóstafyllingar úr þeim íslensku konum sem þær bera. Þetta var ákveðið eftir að sérfræðingahópur skilaði skýrslu um fyllingarnar. Landlæknir segir að um sé að ræða falsaða púða. Meira
Eldfjall fær 13 tilnefningar
Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2012 hafa verið kunngjörðar og verða verðlaunin afhent í Gamla bíói 18. febrúar. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall, er tilnefnd til 13 verðlauna. Meira
Varnarlaus gagnvart kúlulánum
Lífeyrissjóðirnir sem keyptu skuldabréf fyrirtækja gátu ekki komið við neinum vörnum þó rekstrarforsendur fyrirtækja eða eiginfjárhlutfall breyttust verulega. Ástæðan er sú að engir skilmálar voru bréfunum að sjóðirnir gætu gjaldfellt bréfin. Meira
„Erum að sigla í rétta átt“
„Þetta mjakast og kemur vonandi allt í ljós um helgina,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, en viðræður bæjarfulltrúa Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Y-lista Kópavogsbúa hafa staðið yfir síðan í gær. Meira
Festu bíla á Nesjavallavegi
Þrír hópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið til aðstoðar ökumönnum sem fest hafa bíla sína. Um er að ræða þrjár bifreiðar, tvær á Nesjavallavegi og eina við Stardal á Mosfellsheiði. Meira
Verðum að læra af reynslunni
Arnar Sigurmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, vonast til þess að hægt verði að draga lærdóm af skýrslunni um starfsemi sjóðanna á árunum fyrir hrun sem lögð var fram fyrr í dag. Hann hafði ekki séð skýrsluna fyrr en í dag en hann sagði hana ekki hafa komið verulega á óvart. Meira
Gestirnir fóru út með áfengið
Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan sölu áfengis á tveimur veitingahúsum í miðborginni eftir að komið var fram yfir leyfðan afgreiðslutíma en á öðru þeirra voru gestir staðarins jafnframt að bera með sér áfengi út af staðnum. Meira
Var þörf á gjaldeyrisvörnum?
Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor segist ekki sannfærður um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá lífeyrissjóðunum að gera gjaldeyrisvarnasamninga við bankana, en sjóðirnir töpuðu miklum fjármunum á þeim. Meira
Luna fann marijúana
Fíkniefnahundurinn Luna komst á snoðir um kannabisefni um borð í Herjólfi í dag. Efnin voru í bíl og voru eigandi bílsins og ökumaður réttindalausir. Meira
Fólk er undrandi og reitt
Hækkun fasteignagjalda á hesthús í Reykjavík hefur valdið miklum óróa á meðal hestamanna í borginni. Jón Finnur Hansson, framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Fáks, á þó von á því að það náist að leysa málið á farsælan hátt. Þó sé ljóst að hækkunin komi niður á fólki sem ekki standi undir henni. Meira
„Þetta gengur ágætlega“
„Við vorum að klára og ætlum núna að gera hlé,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, en bæjarfulltrúar flokksins hafa rætt við bæjarfulltrúa Framsóknarflokks og Y-lista Kópavogsbúa í dag um myndun nýs meirihluta í bænum. Meira
LSR tapaði 101 milljarði
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) tapaði 101 milljarði á árunum 2008-2010, en sjóðurinn er stærsti lífeyrissjóður landsins. Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði 80 milljörðum og Gildi 75 milljörðum. Meira
LV tapaði 18 milljörðum á Kaupþingi
Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði tæpum átján milljörðum á hlutabréfaeign sinni í Kaupþingi og tíu milljörðum króna á Exista. Meira
Gæsluvarðhald vegna hnífstungu
Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. febrúar í tengslum við alvarlega líkamsárás í Kópavogi í morgun. Meira
Ekki fleiri á nöglum
Ófærðin í borginni virðist ekki hafa verið hvati fyrir ökumenn að skipta yfir á negld dekk, ef marka má talningar umhverfis- og samgöngusviðs borgarinnar. Meira
Ræða þarf stjórnarkjör
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, hvetur til þess að lífeyrissjóðirnir ræði hvort gera eigi breytingar á þeirri aðferð sem þeir nota við að kjósa í stjórn lífeyrissjóðanna. Meira
Fór í aðgerð eftir hnífstungu
Líðan mannsins, sem var stunginn með hnífi í austurbæ Kópavogs síðastliðna nótt, er stöðug samkvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæsludeild Landspítalans. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum og gæsluvarðhaldskrafa yfir honum verður tekin fyrir síðdegis í dag. Meira






Senda inn efni