Samþykkt í bæjarráði Reykjanesbæjar að selja hlut í HS

Frá Reykjanesbæ
Frá Reykjanesbæ mbl.is/ÞÖK

Samþykkt var á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun að selja hlutafé í Hitaveitu Suðurnesja. Jafnframt var samþykktur lánasamningur milli Reykjanesbæjar og Geysir Green Energy ehf. að upphæð kr. 4.755.604.927 krónur vegna kaupa Reykjanesbæjar á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Var þetta samþykkt með þremur atkvæðum meirihlutans í bæjarráði gegn tveimur atkvæðum minnihlutans.

Á vef Reykjanesbæjar kemur fram að viljayfirlýsing um samstarf innan Hitaveitu Suðurnesja hafi verið lagt fram á fundi bæjarráðs í morgun. Viljayfirlýsingin samþykkt með 3 atkvæðum meirihlutans gegn 2 atkvæðum minnihlutans.

Guðbrandur Einarsson lagði fram eftirfarandi bókun minnihlutans:

„Við greiðum að sjálfsögðu atkvæði gegn því að Reykjanesbær taki lán hjá Geysir Green Energy ehf. til þess að Reykjanesbær geti nýtt sér þann forkaupsrétt sem skapaðist við sölu ríkisins á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja. Í því felst að verið er að framselja þennan hlut til Geysis og slíkt kemur alls ekki til greina af okkar hálfu.

Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins miðvikudaginn 11. júlí var sagt frá samkomulagi um með hvaða hætti Hitaveitu Suðurnesja yrði skipt milli Reykjanesbæjar, Geysis Green Energy, Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur.

Þetta samkomulag skýrir að sjálfsögðu hvers vegna sjálfstæðismenn velja að taka lán hjá Geysi Green Energy ehf. sem er fjárfestingarfélag en ekki fjármögnunarfyrirtæki. Það var aldrei ætlun þeirra að Reykjanesbær myndi eiga þetta hlutafé, heldur er augljóst að búið var að framselja þennan hlut til Geysis og gott betur en það.

Þá samþykkjum við ekki það samkomulag sem sjálfstæðismenn hafa undirgengist og nefnt er hér að ofan. Það að einkaaðilar komist yfir þriðjungshlut í Hitaveitu Suðurnesja, þegar ekki liggur fyrir nein áætlun um með hvaða hætti rekstri orkufyrirtækja verði háttað til framtíðar, er óásættanlegt að okkar mati.

Þessi vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í þessu máli, eru hins vegar dæmigerð fyrir sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og eru í algjöru samræmi við það verklag sem þeir hafa viðhaft við stjórn sveitarfélagsins á umliðnum árum.

Ekkert samráð

Minnihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur ekkert verið hafður með í ráðum í þessu stóra og mikilvæga máli og öll vitneskja hefur verið fengin úr fjölmiðlum eða frá aðilum ótengdum bæjarstjórn. Það hlýtur að vera hlutverk bæjarstjóra, sem ráðins starfsmanns bæjarstjórnar, að upplýsa alla kjörna fulltrúa um stöðu mikilvægra mála er varða sveitarfélagið, svo ekki sé talað um jafnt mikilvægt mál og máefni Hitaveitu Suðurnesja eru. Þessi upplýsingaskylda hlýtur að ná til allra stjórnarmanna, en ekki bara til pólitískra samherja.

Fyrirfram ákveðið

Það virðist hafa verið ætlun sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjanesbæjar frá upphafi, að framselja forkaupsréttarhlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Geysis Green Energy eins og nú hefur komið á daginn. Því til viðbótar ætla þeir að selja 5 % af hlut Reykjanesbæjar í Hitaveitunni og mun fá fyrir það á þriðja milljarð. Hin stóru orð sjálfstæðismanna og þó sérstaklega bæjarstjóra, um að ekki yrði selt í Hitaveitu Suðurnesja eru því að engu orðin og hjóm eitt.

Eyðslu haldið áfram

Þessi sala Reykjanesbæjar á 5% hlut í Hitaveitu Suðurnesja veitir sjálfstæðismönnum hins vegar tækifæri til að halda áfram á þeirri braut umfram eyðslu sem þeir hafa verið á undanfarin ár. Eftir að hafa selt allar fasteignir sveitarfélagsins er nú komið að sölu á Hitaveitu Suðurnesja til þess að fjármagna eyðslu umfram tekjur. Það hlýtur að vekja athygli að það eru sömu aðilar viðriðnir kaup á fasteignum Reykjanesbæjar og nú koma til með að eignast þriðjungshlut í Hitaveitunni.

Svikin loforð

Sá kapall sem hefur verið lagður af bæjarstjóra og forráðamönnum Geysis Green Energy undanfarna mánuði er því að ganga upp. Tilgangurinn með staðsetningu Geysis hér á svæðinu var eingöngu sá að komast yfir ráðandi hlut í Hitaveitunni og nú hefur það tekist með dyggum stuðningi sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Ekki er nú lengur talað um að Geysir eignist þau 15%, sem fólust í sölu á hlut ríkisins í Hitaveitunni, heldur eignast einkaaðilar nú þriðjungshlut í þeim miklu verðmætum sem Hitaveitan hefur yfir að ráða, s.s. í einokunarsölu á heitu og köldu vatni til íbúa hér á svæðinu ásamt þeim verðmætu nýtingarréttindum sem Hitaveitunni eru tryggð.

Tilraunadýr einkavæðingar

Það er því ljóst að Suðurnesjamenn verða notaðir sem tilraunadýr við einkavæðingu orkufyrirtækja, án þess að þeir hafi verið um það spurðir eða að gerð hafi verið tilraun til að ræða um með hvaða hætti þessi einkavæðing eigi að fara fram. Bæjarstjórnir sveitarfélaganna hér á Suðurnesjum hafa algjörlega brugðist í þessu máli og hafa tekið skammtímasjónarmið fram yfir framtíðarhagsmuni íbúanna. Með þessum gjörningi hefur verið gefið út skotleyfi á Hitaveitu Suðurnesja og íbúa á Suðurnesjum með ófyrirséðum afleiðingum," að því er segir í bókun Guðbrands Einarssonar og Eysteins Jónssonar, fulltrúa A-listans sem er í minnihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Böðvar Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun meirihlutans en Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Samkomulag um HS boðar farsæla lausn fyrir Suðurnes

Reykjanesbær, Geysir Green Energy, Hafnarfjarðarkaupstaður og Orkuveita Reykjavíkur, hafa gert með sér samkomulag um samstarf innan Hitaveitu Suðurnesja hf. en samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Reykjanesbæjar frá 2.júlí s.l. var lýst yfir vilja bæjarstjórnar Reykjanesbæjar til þess að Geysir Green Energy yrði aðili að HS.

1. Með samkomulaginu er tryggt að Reykjanesbær er áfram stærsti eignaraðilinn og með ráðandi hlut í HS.

2. Samkomulagið tryggir að HS verður áfram öflugt, sjálfstætt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ. Engin röskun verður á högum starfsfólks HS á starfssvæði fyrirtækisins.

3. Með samkomulaginu gerist OR hluthafi í Keili. Atlantic Center of Excellence, sem stofnað er á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli og hlutast til um að ýmis rannsóknar- og þróunarverkefni verði unnin þar. GGE er þegar virkur hluthafi og samtarfsaðili Keilis.

4. Með samkomulaginu eru aðilar með fjármagn og fagþekkingu fengnir inn í HS, sem hyggjast koma sterkir að stuðningi við samfélagsleg verkefni á starfssvæði HS.

5 Samkomulagið tryggir jafnframt fyrstu skref í einkavæðingu orkufyrirtækja á Íslandi þar sem kraftar einkaframtaksins verða virkjaðir á sviði orkuframleiðslu og sölu, með tilkomu Geysis Green Energy, sem hluthafa í Hitaveitu Suðurnesja.

6. Auk þess að halda ráðandi hlut í HS skapast talsverður hagnaður Reykjanesbæjar af þessum viðskiptum við GGE og OR, sem gerir sveitarfélaginu kleift að greiða niður skuldir bæjarsjóðs.

Hlutur Reykjanesbæjar verður tæp 35%, GGE 32%, OR 16.6%, Hafnarfjarðar 15,4% Gert er ráð fyrir að hlutur OR geti orðið 32% selji Hafnarfjörður hlut sinn til OR.

Eftir þessar breytingar er hlutur Reykjanesbæjar í HS nú 18,5 milljarða kr. virði.

Ásökunum minnihlutans um lítið samráð, fjármálaóreiðu, svikin loforð eða aðrar óvandaðar starfsaðferðir er vísað á bug," að því er segir í bókun meirihlutans. Undir þetta rita Böðvar Jónsson, Björk Guðjónsdóttir og Steinþór Jónsson, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði Reykjanesbæjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert