Bilun í ljósleiðara tengdum Farice

Farice-sæstrengurinn.
Farice-sæstrengurinn.

Ljósleiðari í Skotlandi, sem m.a. flytur öll fjarskiptasambönd frá landtökustöð sæstrengsins FARICE-1 til afhendingarstaðar fyrir þjónustu Farice hf. í London, bilaði í dag klukkan 16:40. Íslensk og færeysk fjarskiptafyrirtæki nota CANTAT-3 sæstrenginn sem varaleið, en afkastageta er þó verulega skert, líklega ekki nema 1/3 af því sem venjulegt er.

Í tilkynningu frá Farice segir, að mjög muni hægja á allri netumferð til annarra landa meðan ástand þetta varir. Verið sé að leita að biluninni og verði síðar upplýst hve langan tíma viðgerð muni taka.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert