Seðlabanki vill samráð við ASÍ og SA

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Árni Sæberg

„Vissulega er 2,5 prósentustiga vaxtalækkun meiri lækkun en þeir hafa áður kynnt, það er vissulega jákvætt. Við hefðum hins vegar ekki viljað sjá vextina lækka um 2,5 prósentur heldur að þeir hefðu verið færðir niður í 2,5%,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Hann segist telja að þær forsendur sem Seðlabankinn er að vinna út frá sé ákveðinn vítahringur. Vítahringurinn felst í því að vaxtahækkanir Seðlabankans leiddu til mikilla fjárfestinga í íslenskum krónum erlendis frá og nú eru þessar fjárfestingar það vandamál sem hindrar bankana í að lækka vextina aftur.

„Þannig að með vaxtahækkununum bjuggu menn til vandamál sem svo aftur býr til annað vandamál. Við verðum að brjótast út úr þessum vítahring. Við teljum að það sé þannig núna að þessir háu vextir leiði til mikilla afskrifta og eignahruns í hagkerfinu. Við teljum að með því að lækka vextina og afnema gjaldeyrishöftin, og fara að vinna með markaðnum frekar en á móti honum, þá mundi eignahrunið alls ekki verða meira en er fyrirséð núna og síðan væri þá miklu meiri von til þess að við kæmumst fyrr út úr þessum vandræðum sem við erum í. Ég er að tala um að fara með vextina niður í þá tölu að þeir verði kannski ekki nema 3% umfram vexti á evrusvæðinu, það er bara alveg nóg. Hvort þetta gerist í einu skrefi eða fleirum skiptir ekki öllu en það þarf að gerast hratt,“ segir Vilhjálmur Egilsson.

Hann segir menn verða að átta sig á því að íslensk fyrirtæki, bæði þau sem starfa innanlands og líka útflutningsfyrirtækin, séu að keppa við erlend fyrirtæki á mjög háum vöxtum. Ekki sé við því að búast á meðan vextirnir sé svona háir, að útflutningurinn vaxi, þrátt fyrir hvað gengið er lágt. Gjaldeyrishöftin takmarki svo líka vöxt í útflutningi.

Seðlabankastjóri vill samráð

Fulltrúar úr framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins og forysta Alþýðusambands Íslands þinguðu í morgun með bankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra Seðlabankans.

„Þar lagði bankastjóri Seðlabankans til að komið yrði á formlegu samráði milli aðila. Settur yrði á fót vinnuhópur sem hefði reglulegt samráð og við tókum þessu fagnandi, það er mjög jákvætt. Þetta er svo nýtilkomið að framkvæmdin er ekki ljós en það verður á okkur hlustað. Svo á eftir að koma í ljós hvað gert verður með það sem við segjum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert