Bankinn fékk ekki lyklana
Bloggað um fréttina
-
Heiða B. HeiðarsSorglegt.... en ógeðslega kúl!
-
Jenný Anna BaldursdóttirEngin undankomuleið
-
Hlynur HallssonFrjálsi fjárfestingarbankinn
-
Stefán Friðrik StefánssonTáknrænn gjörningur á Álftanesi
-
Billi bilaði"Bankinn fékk ekki lyklana"...
-
Lúðvík JúlíussonOrsök vanda flestra heimila nú eru 100% lánin!
-
Anna Margrét BjarnadóttirHvunndagshetja dagsins í dag - hugsa sér ef allir
-
Salvör Kristjana GissurardóttirSvona getur farið fyrir Kárahnjúkavirkjun
-
Vilhjálmur ÁrnasonÁ reikning viðskiptaráðherra og ríkisstjórnar.
-
Vilbogi Magnús EinarssonFordæmið komið!!!!!!!!!!!!!
-
Benedikta EHarmleikur - sem ástandið í þjóðfélaginu býður upp
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirÞingmenn gefa feitar yfirlýsingar um samstöðu með
-
Ómar RagnarssonEf þetta hefði verið nauðsynlegt atriði í kvikmynd
-
Steinar Immanúel SörenssonTek ofan fyrir þér gröfumaður
-
Anna Ólafsdóttir BjörnssonSorglegast að heyra fólk segja: Þetta er bara
-
Gunnar GunnarssonÞegar örvænting og svekkelsi taka völdin
-
Guðrún Katrín ÁrnadóttirAfleiðing góðæris.
-
Einhver ÁgústNýr Ólafur Elíasson?
-
Steinunn Friðriksdóttirhugrakkur maður
-
Auður HalldórsdóttirSagan um Hróa hött
-
Gústav GústavssonNóvember?
-
Friðrik Hansen GuðmundssonNýja sjálfstæðisbaráttan hafin á 17. júní á
-
Marinó G. NjálssonTraustið hvarf og það þarf að endurreisa
-
Vilhjálmur C BjarnasonEngu að tapa......
-
Pétur ÁsbjörnssonBlindur ráðherra.
-
Jón VilhjálmssonÞarna sést er fólk grípur til örþrifaráða hefur
-
Páll VilhjálmssonHvernig skal böl bæta?
-
Sigurður GuðmundssonÞjóðhetja
-
Hrappur ÓfeigssonEkki sá síðasti.....
-
Ævar Rafn KjartanssonÞessi hetja ætti að fá Fálkaorðuna.....
-
Ragnar BorgþórsEnn ein rósin..
-
Þórhallur V EinarssonNiðurbrot hins almenna borgara er hér ljóst!
-
Ragnheiður J. SverrisdóttirGott hjá honum !
-
Þór JóhannessonTáknrænt hrun kapítalismans
-
Ragnheiður Arna MagnúsdóttirFólk er að gefast upp...
-
Jóhannes GuðnasonMEIRI HÁTTAR - TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA:
-
Jónína Sólborg ÞórisdóttirÆji bú fokking hú
-
Jón Aðalsteinn JónssonJón og séra Jón
-
Einar GuðjónssonFrjálsi fjárfestingarbankinn og VG Banki
-
Rúnar Þór ÞórarinssonHahahaha!
-
Björn FinnbogasonFarið að lögum!!!
-
Ægir Óskar HallgrímssonÞað sem koma skal??
Frjálsi fjárfestingarbankinn eignaðist íbúðarhúsið við Hólmatún á Álftanesi á nauðungaruppboði í nóvember en fyrri eigandi reif það að mestu í dag. Bankinn hafði ekki fengið lyklavöldin. Gengið verður í það í dag að hreinsa byggingarefnið af lóðinni og ganga frá umhverfinu.
Haft var eftir fyrrum eiganda hússins í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að honum hefði nýlega verið birt útburðartilkynning. Hann hefði ekki haft neinu að tapa, ekki skipti máli hvort hann færi á hausinn vegna 60 milljóna króna skuldar eða 120 milljóna. Með þessu gæti hann líka vakið athygli á slæmri stöðu sinni sem skuldara.
Bjarni S. Einarsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Álftaness, segir að sækja þurfi um byggingarleyfi til niðurrifs húsa en engin umsókn hafi borist um rif þessa húss. Hann segist hafa komið fyrst að þessu máli sem íbúi, í gönguferð um götuna. „Ég sá hvað var að gerast og kallaði lögreglu og eigendur til,“ segir Bjarni. „Ég er orðlaus yfir þessu,“ bætir hann við.
Ingólfur Friðjónsson hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum segir að bankinn hafði eignast húsið á uppboði í nóvember 2008 en húsið hafi ekki verið komið í vörslu hans. Til hafi staðið að taka við lyklunum og vörslu hússins hjá fyrri eiganda næstkomandi föstudag.
„Þetta kom okkur algerlega í opna skjöldu, eins og öðrum,“ segir Ingólfur.
Ingólfur og Bjarni telja húsið ónýtt. Bílskúrinn sé það eina sem eftir standi.
Búið er að semja við verktaka um að hreinsa leifar hússins svo þær valdi ekki hættu og tjóni fyrir nágranna og verður það gert í dag.
Til baka








Senda inn efni



