Minnisblað birt vegna ógildingar

Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins
Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins mbl.is/Árni Sæberg

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði í fréttum Sjónvarpsins í kvöld að minnisblað, sem trúnaði var aflétt af í dag, sýni að forsvarsmenn breskra, hollenskra og íslenskra innistæðusjóða hafi rætt það árið 2006 hvernig bregðist skyldi við gætu íslensku bankarnir ekki staðið við skuldbindingar sínar vegna innistæðna í Bretlandi og Hollandi.

Höskuldur sagði að í þessu minnisblaði hafi réttindi Íslendinga verið tekin með í reikninginn og að þar hafi m.a. verið kveðið á um það að kæmi slík staða upp skyldi íslenski innistæðusjóðurinn fara með réttindamál Íslendinga. Ekki sé minnst á neina ríkisábyrgð í því sambandi.

Tekið er sérstaklega fram í Icesave-samkomulaginu sem nú sé til meðferðar Alþingis að þetta minnisblað eigi ekki lengur við.  Höskuldur sagði fyrst hafa komið fram í dag, hvað fram kæmi á þessu minnisblaði, og að honum þætti miður að upplýsingar um það hefði ekki legið fyrir frá upphafi.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert