Bílslys í Hafnarfirði

Bílslys átti sér stað fyrir stundu í Hafnarfirði, á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Álftanesvegar.Hópferðabíll og fólksbifreið lentu þar saman. Lögregla og tækjabifreið slökkviliðsins eru á vettvangi og verið er að vinna að því að ná fólki úr bifreiðunum. Svo virðist sem ekki hafi orðið stórslys á fólki. Einn var fluttur á slysadeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert