Getur ekki samþykkt Icesave
Bloggað um fréttina
-
Sigurður HaraldssonÁstkær fóstur jörð.
-
Salvör Kristjana GissurardóttirLilja Mósesdóttir vill ekki veðsetja íslensk börn
-
Baldur Gautur BaldurssonRéttsýni og drengskapur
-
Jakob Falur KristinssonSamþykkir ekki
-
Guðmundur F JónssonLiljur Vallarins
-
Gunnar WaageHvað er málið?
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirLilja Mósesdóttir er alvöru manneskja
-
Jóhann ElíassonAGAINST THE WIND...............
-
Arnar BjörnssonHvað vill fjandans fjórflokkurinn gera ?????
-
Gunnar Skúli ÁrmannssonLilja tekur afstöðu-hún hefur trú á Íslandi.
-
Benedikta ELilja Mósesdóttir þingmaður Vg. - Til varnar þjóð
-
Guðlaugur HermannssonÞað er verið að gera úlfalda úr mýflugu. Það eru
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirSviksemi og blekkingar sjálfstæðisflokks
-
Sigurlaug Guðrún Inga GísladóttirEf bara það væru fleiri sem hefðu hennar kjark og
-
Viggó JörgenssonFáum þriðja heims lífskjör eins og á miðöldum.
-
Árni Karl EllertssonÞað verður munað eftir Lilju Mósesdóttur fyrir að
-
Stefán Friðrik StefánssonHugrökk yfirlýsing hjá Lilju Mósesdóttur
-
Jón Valur JenssonDemókratar í Bandaríkjunum og ESB (EB) bera afar
-
Kristinn PéturssonTilvitnun í 44. gr. stjórnarskrár... "Alþingismenn
-
Loftur Altice ÞorsteinssonLilja Mósesdóttir í Silfrinu
-
Sigurður JónssonFellur Vinstri stjórnin í vikunni?
-
Haraldur HaraldssonGetur ekki samþykkt Icesave/er það nokkur undur ??
-
Jón Baldur LorangeLilja ætlar að standa og falla með sannfæringu
-
Jóhannes RagnarssonLilja Mósesdóttir er Snæfellingur eins og ég
-
Sigurður ÞórðarsonGegnheill stjórnmálamaður sem þorir!
-
Erling Garðar JónassonEr fúl móti eins og við var að búast.
-
Ómar RagnarssonSpenna að koma í málið.
-
Gísli Foster Hjartarson1 atkvæði, mörg eftir
-
Bjarni KristjánssonGott að sjá Lilja var með kjark til að lesa nýja
-
Egill JóhannssonEkkert er upphaf alls
-
Sveinbjörn Ragnar ÁrnasonGott hjá Lilju en mun hún standa við yfirlýsinguna
-
Haraldur BjarnasonHvað þá?
-
Stefán Óli SæbjörnssonAð standa á sannfæringu sinni er dugur.
-
Lúðvík LúðvíkssonNÚ ER VON
-
Magnús Helgi BjörgvinssonJæja Lilja þá verðum við bara að lýsa okkur
-
Heimir L FjeldstedHvað segir samviska annarra Vg-þingmanna
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, sagði í þættinum Silfur Egils í dag, að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu sl. föstudag að hún gæti ekki samþykkt frumvarp, sem nú liggur fyrir Alþingi um Icesave-skuldbingarnar.
„Þegar frumvarpið var kynnt í þingflokki Vinstri grænna þá hugsaði ég með mér: Ég samþykki þetta, það er ekki hægt að komast lengra. Ég sagði félögum mínum að ég samþykkti að þetta færi inn í þingið og fengi þinglega meðferð en ég hefði fyrirvara, ég ætlaði að skoða málið betur.
Síðan les ég frumvarpið sem núna liggur fyrir þinginu og ég get bara ekki samþykkt þetta," sagði Lilja. Hún sagði einnig, að ekki lægju fyrir skuldaþolsútreikningar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland en þeir myndu sýna að Íslendingar muni eiga erfitt með að standa undir Icesave-skuldbindingunum.
Lilja sagðist áfram styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir þessa afstöðu til Icesave-málsins.
Þingmenn stjórnarflokkanna eru samtals 34 á Alþingi en þingmenn stjórnarandstöðu 29. Fleiri þingmenn VG en Lilja hafa lýst efasemdum um Icesave-samningana, þar á meðal Ögmundur Jónasson, sem ekki hefur ekki upplýst um afstöðu sína til frumvarpsins nú.
Líta á afstöðu sjálfstæðismanna sem svik
Lilja sagði í Silfri Egils, að hún hefði fengið að vita það, rétt áður en hún átti að ýta á atkvæðahnappinn þegar fyrra Icesave-frumvarpið var afgreitt á Alþingi síðsumars, að sjálfstæðismenn ætluðu að sitja hjá við endanlega afgreiðslu málsins þótt þeir hefðu tekið þátt í að semja ýtarlega fyrirvara við ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna.
„Ég ákvað samt að halda mínu striki þar sem ég hafði tekið þátt í að gera sérstaklega efnahagslegu fyrirvarana. Ég labbaði síðan niður ásamt mínum félögum í Vinstri grænum og lamdi í borðið. Við upplifðum þetta sem svik (...) og veltum því fyrir okkur hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið að finna leið til að fá okkur Vinsti græn til að samþykkja Icesave-samninginn svo þeir þyrftu sjálfir ekki að óhreinka sig við það," sagði Lilja.
Til baka








Senda inn efni



