Gosórói að minnka

Gossprungan
Gossprungan RAX / Ragnar Axelsson

Skjálftavirkni hefur minnkað til muna eftir að gos hófst í Eyjafjallajökli seint í gærkvöld, 20. mars, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands. Skjálftarnir í nótt hafa mælst grunnir og litlir. Gosóróinn náði hámarki kl 7-8 í morgun en virðist hafa minnkað síðan.

Undanfarnar þrjár vikur hefur verið mikil virkni í Eyjafjallajökli og hafa skjálftarnir flestir mæst á 7 - 10 kílómetra dýpi. Í fyrradag (19. mars) hófst innskotshrina til austurs þar sem skjálftarnir mældust á 4 - 7 kílómetra dýpi. Virknin færðist frekar austur á bóginn fram til laugardags og mældust nokkrir grunnir skjálftar þann dag.

Um 22:30 í gærkvöldi sást lítilsháttar aukning á óróa á þremur jarðskjálftastöðvum sem næstar eru Eyjafjallajökli og um svipað leyti bárust fregnir af því að gos væri hafið í jöklinum, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert