Vikan dæmd fyrir meiðyrði

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt Guðríði Haraldsóttur, ritstjóra Vikunnar, til að greiða 13 ára stúlku 1,1 milljón króna í bætur fyrir meiðandi ummæli um hana í grein í blaðinu. Þá var ritstjórinn dæmdur til að greiða föður stúlkunnar 900 þúsund krónur í bætur vegna sömu greinar, sem birtist á síðasta ári.

Fjallað var um fjölskylduhagi stúlkunnar, skilnað foreldra hennar og samskipti föðurins við móðurfjölskylduna í 30. tölublaði Vikunnar í júlí á síðasta ári. Einnig var rætt um atlæti stúlkunnar hjá föður sínum, samskipti þeirra feðgina og ættleiðingu núverandi eiginkonu föðurins á stúlkunni.

Lögráðamenn stúlkunnar töldu að vegið hefði verið gróflega að æru stúlkunnar og föður hennar, meðal annars með því að líkja henni og högum hennar á heimili sínu við Öskubusku. Það sama eigi við um fullyrðingar um að stúlkan hefði ítrekað huglett sjálfsvíg, fyrst átta ára að aldri, og með myndum af henni.

Þá taldi faðir stúlkunnar, að gróflega væri vegið að æru hans með ásökunum um ofbeldi í garð fyrri eiginkonu, vörslu barnakláms, líkamlegt og andlegt ofbeldi í garð dóttur hans og misnotkun á börnum. Sagði hann að engin tilraun hefði verið gerð af hálfu blaðsins til að bera efnið undir hann eða dóttur hans þannig að þau gætu komið að athugasemdum eða brugðist við röngum fullyrðingum með einhverju móti.

Fram kom í málinu, að upplýsingarnar í greininni voru fengnar frá móðurömmu stúlkunnar, sem hafði óskað eftir umgengnisrétti við stúlkuna með dómsúrskurði en ekki fengið. Taldi Guðríður að líta yrði svo á að amman væri höfundur greinarinnar enda allt efnið haft eftir henni.

Dómurinn féllst ekki á þetta og taldi ritstjóra Vikunnar bera ábyrgð á efninu þótt hann hefði ekki skrifað greinina, sem var ekki merkt. Fram kemur í dómnum, að þótt efni greinarinnar sé að stórum hluta haft eftir ömmunni innan tilvitnunarmerkja þá sé inni á milli að finna umfjöllun, sem augljóslega sé blaðsins. Þá bar amman fyrir dómi, að orðavalið væri blaðamanns sem hún ræddi við þótt innihaldið væri rétt að efni til.

Dómurinn féllst því á kröfur um að tiltekin ummæli í greininni skyldu vera dauð og ómerk og gerði ritstjóranum að greiða feðginunum miskabætur og málskostnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert