Líkamsleifar Fischers grafnar upp

Búið var að ganga frá gröf Fischers í Laugardælakirkjugarði í …
Búið var að ganga frá gröf Fischers í Laugardælakirkjugarði í morgun. mbl.is/Sigmundur

Jarðneskar leifar skákmeistarans Bobby Fischer voru grafnar upp í nótt í samræmi við dóm Hæstaréttar frá því um miðjan júní. Heimilað var að grafa líkamsleifarnar upp og taka úr þeim lífsýni til þess að skera úr um faðerni ungrar stúlku frá Filippseyjum, Jinky Young, sem segir Fischer vera föður sinn. Fischer var grafinn í Laugardælakirkjugarði skammt frá Selfossi árið 2008.

Að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslumanns á Selfossi, var uppgröfturinn framkvæmdur samkvæmt dómi Hæstaréttar og faglega og virðulega að öllu staðið. Sóknarprestur og læknir hafi verið viðstaddir sem og annar nauðsynlegur mannskapur eins og lög geri ráð fyrir við slíkar aðstæður.

Skákmeistarinn Bobby Fischer.
Skákmeistarinn Bobby Fischer. Rax / Ragnar Axelsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert