Segja niðurskurðinn árás á byggðina

Flaggað var í hálfa stöng við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga í gær …
Flaggað var í hálfa stöng við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga í gær eftir að fjárlagafrumvarpið var birt. mbl.is/Hafþór

Á fundi í Framsóknarfélagi Þingeyinga var samþykkt ályktun þar sem lýst undrun og hneykslun á niðurskurði fjárframlaga til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Í ályktun er þessi niðurskurður kallaður „ árás sem gerð er á byggð í Þingeyjarsýslum“.

Í fjárlagafrumvarpi 2011 er gert ráð fyrir 3818 milljón króna niðurskurði í heilbrigðiskerfinu á landsvísu, 374 milljónir lenda á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga (HÞ), sem verður fyrir tæplega 40% niðurskurði.

„ Þar með verða íbúar á þjónustusvæði HÞ fyrir tífalt meiri niðurskurði í heilbrigðisþjónustu en hinn almenni Íslendingur. Þessi niðurskurður er árás á mannlíf í Þingeyjarsýslum, veikir byggðina, skerðir tekjur, veltir kostnaði yfir á fjölskyldur, ýtir undir fólksflótta úr héraðinu, þekking tapast og grunnstoðir bresta. Tilveru Þingeyinga er ógnað,“ segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert