Lofi ekki upp í ermina á sér

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson Ómar Óskarsson

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að menn lofi ekki upp í ermina á sér. En jafnframt er ásetningur okkar mjög ákveðinn sá að gera allt sem í okkar valdi stedur til þess að koma til móts við skuldug heimili og fyrirtæki,“  sagði Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, við Alþingishúsið fyrir stundu.

„Það þarf enginn að velkjast í vafa um það. En ég vil ekki lofa upp í ermina á mér annað en það að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur.“

Ögmundur hvetur til friðsamra mótmæla.

„Ég tel mikilvægt að allir haldi rósemi sinni og að þeir sem vilji koma á framfæri mótmælum við stjórnvöld geri það á friðsamlegan hátt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert