Allir með byssuleyfi í lagi

Rjúpnaveiði hófst á föstudag og af því tilefni fóru lögreglumenn frá Selfossi til Þingvalla á sunnudag þar sem þeir stöðvuðu öll ökutæki sem fóru framhjá á meðan lögreglumennirnir dvöldu þar.

Í 40 bílum voru veiðimenn á leið af veiðisvæðum. Í öllum tilvikum voru menn með allt á hreinu er snéri að byssuleyfum og veiðikortum. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert